Skilmálar.

Við hjá CloudHouse ásetjum okkur það markmið að veita viðskiptavinum okkar persónulega og góða þjónustu.
Hér koma upplýsingar um þá skilmála sem verslunin gefur sér.
Hafir þú einhverjar spurningar þá svörum við fyrirspurnum í síma 8884470

 

 

Aldurstakmark
Í vefverslun Cloudhouse.is er 18 ára aldurstakmark. Við áskiljum okkur rétt til þess að byðja fólk um sönnun um aldur með framvísun löggildra skilríkja með mynd. 
Komist upp um að viðskiptavinur sé að ljúga til um aldur eftir að sala hefur verið framkvæmd í verslun eða á vefnum verður vara ekki afhent og sala endurgreidd að fullu eftir að rætt hefur verið við foreldra eða forráðamann.

 

 

Heimsendingar
Cloudhouse sendir pantanir með Íslandspósti innan 48 klst á virkum dögum frá því að pöntun er greidd. Við munum gera okkar besta að senda út pantanir eins fljótt og hægt er innan þess tíma. 
Sé gengið frá greiðslu um helgi, á frídögum eða seinnipart föstudags fer pöntun í póst næsta virka dag.
Hægt er að velja um 4 afhendingarleiðir við gerð pöntunar og er sendingargjald niðurgreitt að fullu eða að hluta miðað við hvaða valmöguleiki er valinn
1. Sent frítt á næsta pósthús við þig (Eingöngu ef upphæð pöntunar fer yfir 5.000 kr)
2. Sent á næsta pósthús við þig. Verð: 600 kr
3. Sent í heimkeyrslu þar sem það er í boði. Verð: 900 kr

 

 

Sé óskað eftir því að láta senda útfyrir landsteina Íslands skal hafa beint samband við okkur í síma eða tölvupósti og ganga frá pöntun þannig.

 

 

Greiðslur í vefverslun
Allar greiðslur fara fram í gegnum öruggar greiðslugáttir og geymir CloudHouse ekki neinar kortaupplýsingar eða lykilorð.
Þú getur valið um að greiða með eftirfarandi leiðum
1. Kredit-/Debetkort - Greitt í gegnum örugga gátt Valitors með annaðhvort kreditkorti eða debetkorti

 

 


Sé óskað eftir að greiða með öðrum leiðum, eins og t.d millifærslu þarf að panta í gegnum síma 6113116

 

 

Hætta við pöntun: 
Viljir þú hætta við pöntun sem gerð var í gegnum vefverslun þá þarf að hringja í okkur eða senda tölvupóst varðandi það.
Við endurgreiðum vöruna að fullu ef hún hefur ekki farið úr húsi, en ef varan hefur verið send af stað fæst hún endurgreidd þegar viðskiptavinur hefur sent hana til baka til okkar.
ATH að ef hætt er við pöntun eftir að vara er send af stað fæst hún ekki endurgreidd að fullu heldur er upphæðin endurgreidd mínus sendingarkostnaður. Viðskiptavinur stendur einnig kostnað af endursendingu til okkar.

 

 

Skilafrestur: 
Viðskiptavinir hafa 14 daga frá kaupdegi til þess að skila vöru ef hún er í óopnuðum pakkningum og pakkningar heilar. 
Innan 14 daga fæst varan endurgreidd að fullu mínus sendingarkostnað ef við á.
Eftir 14 daga fæst vöru ekki skilað
ATH að vökvum er aldrei hægt að skila undir neinum kringumstæðum þó svo að þeir séu enþá í upprunalegum umbúðum og innsiglaðir.

 

 

Villur, gallar og önnur ávöxtun vara

 

 

1. Ef við afhendum ranga vöru þá skal hafa samband við okkur. Viðskiptavinur skal senda vöruna til baka til okkar óopnaða á okkar kostnað og við sendum á okkar kostnað rétta vöru til viðskiptavinar. Það er á ábyrgð viðskiptavinar að athuga hvort rétt vara sé afhend áður en vara er tekin úr pakkningu.

 

 

2. Tönkum færst einungis skilað / skipt séu þeir ónotaðir í upprunalegum pakkningum.
Þar sem eðli tanka er mjög mismunandi og ekki er hægt að vita hvaða rafhlöðu, kraft eða vökva viðskiptavinir eru að nota hverju sinni er ekki hægt að bera ábyrgð á því hversu lengi einn tankur mun endast hverju og einum. 

 

 

3. Ef vara reynist gölluð innan 3 mánaða frá kaupdegi, er afhend gölluð eða er gölluð við fyrstu notkun, fæst henni skipt fyrir sömu vöru eftir skoðun hjá okkur. Ef eins vara er ekki til á lager fæst sambærileg vara afhent.
Það er á þinni ábyrgð að athuga hvort varan virki eins og hún á að gera frá upphafi.
Coil/brennarar/Hitarar flokkast ekki undir þennan lið, sjá lið 4.
Tankar flokkast ekki undir þennan lið, sjá lið 2

 

 

4. Coil, einnig þekkt sem brennarar og hitarar, er ekki hægt að ábyrgjast. ending coila er mjög misjöfn og er auðvelt að skemma þau ef rangt er farið með. En ef coil reynist gallað strax frá upphafi og hægt að sýna frammá það þá er hægt að hafa samband við okkur og við skoðum hvert mál fyrir sig.

 

 

5. Ef viðskiptavinur telur vöru gallaða þurfum við að fá hana í hendurnar til skoðunar. Reynist vara ekki gölluð við skoðun hjá okkur þá er vara endursend á kostnað viðskiptavinar.

 

 

6. Ef varan virkar ekki með "Þinni" vöru sem ekki er keypt hjá okkur en virkar á okkar vörum, telst það ekki galli á okkar vörum. 

 

 

7. Við getum aðeins ábyrgst það að vörur sem við seljum passi með öðrum vörum sem við seljum.
Rafrettu markaðurinn er gífurlega stór og fjölbreyttur og er alltaf möguleiki á því að sumar vörur virki illa eða ekki með öðrum vörum. Þetta er sjaldgæft en getur gerst

 

 

8. Ódýrari batterí geta verið keyrð út eftir 90 daga í stöðugri notkun og hleðslu. Hleðslubatterí hafa ekki endalausta getu og rýrna með tímanum. Teljir þú vöruna gallaða frekar en útkeyrða þá getur þú sent hana til okkar og við förum yfir hana og metum hvort um sé að ræða galla eða notkun

 

 

9. VIð getum ekki ábyrgst brotin gler eða vörur sem sjáanlegt tjón er á.

 

 

10. Til að skila til okkar vöru þarf að senda hana til okkar vel innpakkaðri í A pósti. Einnig þarf að útvega upprunalega kvittun, kennitölu, fullt nafn og símanúmer.  Upplýsingar skulu fylgja með sem útskýra hver ástæða endursendingar er.
Við berum ekki ábyrgð á glötuðum sendingum sem verið er að senda til okkar.

 

 

11. Viðskiptavinnir sem reyna að skila klónuðum vörum, þ.e vörum sem eru eftirlíkingar eða vörum sem ekki eru keyptar hjá okkur og ekki gerðar af framleiðendum sem við styðjum og seljum frá, munu fá vöruna endursenda til sín á eigin kostnað, og þeir viðskiptavinir munu ekki lengur fá að versla við okkur á vefsíðu okkar né í verslun og málið meðhöndlað sem vörusvik samkvæmt lögum.

 12. Lög og varnarþing Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur

Governing law / Jurisdiction These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law.

 

Við fögnum ábendingum varðandi skilmála þessa og viljum ávalt veita viðskiptavinum okkar bestu mögulegu þjónustuna.
Ef það er eitthvað sem þér finnst vera ósanngjarnt eða óskýrt í skilmálum þessum þá skalt þú endilega hafa samband við okkur.

 

 

Skilmálar þessir geta tekið breytingum án fyrirvara en ef svo verður mun tilkynning vera gefin út í fréttahorni á síðu þessari og á samfélagsmiðlum.